Ábyrgðarleysi
palmi, miðvikudagur 18 febrúar kl: 17:50
ég er allveg ágætlega sammála þessu en það sem kom bankahruninu var fjárfestingar í hvorum öðrum... en auðvitað átti fólk ekkert að vera að taka þvílíku lánin og alles, það er bara common sense að ef þú hefur ekki efni á því er alls ekki gáfað að vera að kaupa það..
Tobbi Villa, miðvikudagur 18 febrúar kl: 17:59
En ef ég tók bara venjulegt íbúðalán upp á 20 milljónir, átti sjálfur 6 milljónir og keypti mér í búð. Kreppan er að naga mig í rassgatið og ekki vill ég meina að ég eigi þátt í bankahruninu. Þeim tókst það upp á eigin arma sem bönkunum stórnuðu, siðblindir vegna græðgi hugsuðu þeir í mínútum frekar en dögum.
stebbi, miðvikudagur 18 febrúar kl: 18:28
ég held að þú sért ekkert alveg með það á hreinu hvernig þetta- og hvað er er að gerast!
Sturla, miðvikudagur 18 febrúar kl: 21:48
Ég er að tala um fall íslands almennt, ekki bara bankahrunið. Við áttu langflest þátt í þessu, kaupóður almenningurinn, gráðugir banka- og bisnessmenn, og blindir og vanhæfir stjórnmálamenn. Sumir virtust halda að partí-ið myndi endast að eilífu þrátt fyrir að viðvörunarbjöllunar hringdu á fullu.
Helgi, miðvikudagur 18 febrúar kl: 22:00
Sammála myndinni.
Þorvaldur, fimmtudagur 19 febrúar kl: 19:26
Algjörlega sammála þér, nema með sjónvörpin. Mér finn ég alltaf heyra að kreppan sé óreiðufólki, eins og fólki sem keypti sér flatskjá, að kenna. Persónulega finnst mér flatskjár eðlileg þróun sjónvarps. Vissulega tengjast afborganir af téðum sjónvörpum máli en asnalegt að minnast alltaf á SJÓNVÖRPIN sem rót vandans
Bjartur, föstudagur 20 febrúar kl: 00:22
Ummm, þú ert að blanda saman eplum og appelsínum hér. Eða til að nota vatnsdropana þína; þá hafa vatnsdroparnir í flöskunni minni inni í ísskáp bara alls ekkert með flóð fyrir utan gluggann að gera.
J, miðvikudagur 01 apríl kl: 09:39
Bjartur, held að þú sért bara ekki að fatta þetta nógu vel. Það er enginn að tala um vatnsdropa í flösku inn í skáp.
Dæmisaga: Það kemur úrhellisrigning. Einn stakur dropi gerir ekki mikin skaða en saman valda þeir miklu flóði. Sama með kaupóða íslendinga, einn stakur kaupóður vitleysingur gerir ekki mikinn skaða fyrir landið. En ef meginþorri þjóðarinnar sleppir sér og skuldsetur sig uppfyrir haus þá veldur það stórtjóni. Domínó-effektið sem dregur aðra niður með sér.

villi, miðvikudagur 18 febrúar kl: 17:45
sammála þessu