ţriđjudagurinn 24. febrúar 2009

Dabbi Kóngur 1, Kastljós 0

Dabbi kóngur
Dabbi kóngur
Tók þátt í Júróvísjón stemningunni sem myndaðist áðan þegar megnið af landinu sat límt fyrir framan skjáinn að horfa á Dabba í Kastljósinu. Ég beið spenntur eftir að sjá Sigmar spyrill kom með harðar og beittar spurningar til Dabba en til að gera langa sögu stutta þá var hann grillaður af kónginum. Dabbi hélt stillingu sinni allan tímann og svaraði ágætlega fyrir sig.

Það má segja ýmislegt um Dabba en eitt verður ekki tekið af honum, þegar hann talar þá sest fólk niður og hlustar. Hvort menn séu honum svo sammála er svo allt önnur saga.



En svona til að hafa báðar hliðar á málinu þá verður maður að láta þetta fylgja með.



Og svo var þessi langbesti spámaðurinn, ættum bara að gera hana af næsta seðlabankastjóra. Þori líka að veðja að þetta lið sem hlóg þarna er ekki hlægjandi í dag.

Skrifađu athugasemd: