Fávitar
---
Talsmaður neytenda telur réttindi neytenda lítið breytast þó að aukaaðild Íslands að ESB yrði að fullri aðild. Öðru máli gegni hins vegar um kjör neytenda sem myndu stórbatna við aðild sem og möguleikar íslenskra aðila til þess að bæta stöðu neytenda hérlendis.
Þetta kemur fram í nýlegu svarbréfi til nefndar á vegum Stjórnarráðsins um þróun Evrópumála þar sem Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, var beðinn um mat á hagsmunum við aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Talsmaður neytenda telur að réttur neytenda til eigin innflutnings muni batna með inngöngu. Einnig fullyrðir hann að lánakjör neytenda muni stórbatna og verðlag lækka töluvert.
---
Hmmm...já, en myndum við ekki rústa landbúnaðinum (10.000 tengt störf) og hugsanlega sjávarútveginum (Spánverjar, Portúgalir, Englendingar osfrv. rúnka sér yfir hugmyndinni að fá að þurrka upp fiskinn okkar) og þannig vera orðin háð innflutningi á matvælum, einmitt á þeim tíma sem við ættum að vera að stefna að því að minnka það hversu háð við erum öðrum þjóðum sem, eins og reynslan hefur sýnt, er svoleiðis drullusama um okkur þegar harðnar í ári?
Þar fyrir utan grunar mig að þeir einu sem munu græða virkilega á þessu séu verslanirnar sem munu ekkert lækka verðið að ráði og stinga mismuninum í eigin vasa. Eru allir búnnir að gleyma þegar virðisaukaskatturinn var lækkaður á matvæli?
