ţriđjudagurinn 28. apríl 2009

Skíthćll dagsins: Ţráinn Bertelsson

Ţráinn Bertelsson
Ţráinn Bertelsson
Þráinn Bertelsson, rithöfundur, drullusokkur og þingmaður, fær um 200 þús krónur á mánuði frá íslenska ríkinu í "listamannalaun". Nú er Þráinn nýorðinn þingmaður fyrir Borgarahreyfinguna og fær fyrir það sirka 550 þús aukalega á mánuði. En ætlar hann þá að afsala sér "listamannalaununum" frá hinu gjaldþrota ríki fyrst hann er kominn í svona flott starf?

Nei

"Við skulum sameiginlega hafa eitt á hreinu. Hvort sem ég kemst á þing (vegna útstrikana) eða ekki mun ég ALDREI AFSALA mér heiðurslaunum Alþingis, alveg sama hversu mikil fáfræði ríkir um tilkomu þeirra og eðli (þau eiga ekkert skylt við kúlulán eða prófkjörsstyrki og eru ekki óheiðar-lega fengin)"

Og svo heldur hann því fram að hann hafi unnið fyrir þeim og líkir þeim við ólympíugull. Meira líkt lottóvinningi ef þú spyrð mig. Ég veit ekki hvort fer meira í mínar fínustu, sú staðreynd að við séum að punga út peningi til einhverra hippa sem nenna ekki að finna sér almennilega vinnu eða það að hann geti skellt því blákalt fram að hann hafi unnið fyrir þessum peningi og það án þess að roðna! Man ekki betur en að drullusokkarnir í súpergjaldþrota fyrirtækjunum sem settu heimsbyggðina á hausinn hafi líka haldið því fram að þeir hafi unnið fyrir bónusunum sínum.

Ný afstaðnar kosningar hafa sannað gamla máltækið:

Ný andlit, sami skíturinn.

#1

Jón Ţór, mánudagur 18 maí kl: 20:05

Mig langađi bara ađ bćta viđ ađ félögin sem framleiddi Nýtt líf, Dalalíf og löggulíf, auk Atómstöđvarinnar fór lóđbeint á hausinn. Ţađ var ekki einu sinni hćgt ađ hjálpa honum međ kúluláni til ađ redda ţví...

Og síđan fćr hann listamannalaun í kaupbćti......
En ţetta var ekki honum ađ kenna, sennilega öllum öđrum.
kv.
Jón Ţór

Skrifađu athugasemd: