þriðjudagurinn 9. september 2008

The end of the World

Einhverjir vísindamenn í Frakklandi eru nú að búa sig undir að starta dómsdagsvélinni vísindavélinni LHC.

"The world's largest particle accelerator complex, intended to collide opposing beams of 7 TeV protons. Its main purpose is to explore the validity and limitations of the Standard Model, the current theoretical picture for particle physics."

Samkvæmt kenningum þeirra á þessi tilraun að gefa okkur betri innsýn inn í Stóra Hvell (Big Bang, upphaf heimsins) og er það í sjálfu sér gott og gilt takmark. Reyndar er bara ein óvænt aukaverkun sem gæti hugsanlega hlotist af þessari tilraun. Algjör tortíming jarðarinnar.

"Concerns have been raised (including two legal challenges) regarding the safety of the Large Hadron Collider (LHC) on the grounds that high-energy particle collisions performed in the LHC might produce dangerous phenomena, including micro black holes, strangelets, vacuum bubbles and magnetic monopoles.[3][9][10] Individuals such as Walter L. Wagner and Otto Rössler have argued in the media and through the courts that the LHC experiments are unsafe and should be stopped."

En gott að vita að þessir merku vísindarmenn eru tilbúnnir að fórna mér, þér og restinni af mannkyninu í þágu vísindanna. Og að sjálfsögðu hafa margir vísindarmenn keppst við að rakka niður efasemdarmennina, svipað og var gert við Galileo á sínum tíma þegar hann sagði að jörðin væri ekki flöt. Íslenskur vísindarmaður kom meira að segja fram í sjónvarpi (eða útvarpi) og sagði að engir "alvöru" vísindamenn byggust við að heimurinn færist út af þessari tilraun. Vona að þú hafir rétt fyrir þér.

#1

jói, fimmtudagur 11 september kl: 00:00

Rofl þvílík vitleisa og skammtímasín líkt og tölvutaugaveiklunin um aldamótin síðustu.
Og eftir því sem best er vitað þarf supernova til að búa til svarthol og það gerist oftast þegar sólir springa og sólin er dáldið stærri en jörðin hvað þá lítil tilraun í litlu landi á jörðinni.
En það verður gaman að horfa á allt vitlausafolkið hlaupa um öskrandi( OMG,,, OMG!!!!!!!! OMG OMG.. OMMGGGGG!!!!!!!!!!!!!!!). En who cares anyway.

#2

Birgir Hrafn Sigurðsson, fimmtudagur 11 september kl: 00:29

aaaaaa ég trúi ekki að þú hafir snuið þessu á hvolf með Galileo Galilei. Það var kirkjan sem reyndi að bæla hann niður og meira að segja að drepa hann um 1616 og það var ekki fyrr en tæplega 400 árum seinna (31 October 1992) að kirkjan viðurkendi að jörðin væri ekki miðja alheimsins. Hann var vísindamaðurinn sem vissi að heimurinn færi ekki til helvítis. Núna eru allir bunir að vera að segja að við eigum ekki að gera þessa tilraun vegna þess að heimurinn gæti endað og að við þurfum ekki að vita hvernig heimurinn virkar en það er nákvæmlega það sem kirkjan gerði á sínum tíma (hún semsagt bjó bara til útskýringar á sínu máli og allt annað var villutrú (Heracy))

og svo eitt í viðbót... flestir vísindamenn eru sammála um þetta:
1) ekkert efni verður til úr engu (orka verður ekki til heldur umbreytist hún)
2) Sólin okkar er ekki nógu stór og öflug til þess að geta orðið að svartholi þegar hún mun deyj heldur verður hún að hvítum dverg.

vitandi nr1 og nr2 heldur þú að við, mannkinið, búum yfir nægri orku til þess að gera svarthol ?

#3

Hahaha, fimmtudagur 11 september kl: 01:40

Þetta kalla ég bara ofsa trú, farðu og faðmaðu bíbliuna og ímyndaða Guð þinn þína þú andskotans vitleysingur sem velur fáfræði yfir þekkiningu

nokkur fínar settningar
"Clearly the person who accepts the Church as an infallible guide will believe whatever the Church teaches."

"I don't believe in an afterlife, so I don't have to spend my whole life fearing hell, or fearing heaven even more. For whatever the tortures of hell, I think the boredom of heaven would be even worse."

"Our ignorance is God; what we know is science."


bara gaman að settja svona út

#4

Tryggvi, fimmtudagur 11 september kl: 07:53

Ég veit ekki til þess að neinn hafi komið með sannfærandi útreikninga eða röksemdarfærslur fyrir því að LHC geti valdið heimstortímingu... Getur þá átt sér stað heimstortíming í hvert einasta skipti sem eitthver prófar eitthvað nýtt? Það að orkumiklar jónir skelli saman á jörðinni er eitthvað sem gerist mörg þúsund milljarð sinnum á sek alveg náttúrulega, þ.e. mun orkumeiri geimgeislun nær til jarðar. Ef þetta myndi valda heimstortímingu værum við löngu horfin...

#5

Magnús, fimmtudagur 11 september kl: 08:33

Úff, mér finnst þessi bloggfærsla hljóma eins og enn einn trjáfaðmarinn að rúnka sér yfir meintri afburðagetu mannskepnunnar.

#6

Sturla, fimmtudagur 11 september kl: 09:30

Persónulega sat ég ekki sveittur undir borði þegar vélin var sett í gang í gær, mundi fyrst aftur eftir þessu nokkrum klukkustundum eftir að tilraunin fór í gang og get ekki sagt að ég hafi fallist á hné og þakkað almættinu fyrir að hafa hlíft okkur (hefði þá væntanlega fengið eldingu í rassinn, þar sem ég hef ekki farið í kirkju síðan snemma á síðustu öld).

En samt gaman að sjá hversu málefnalegir margir eru í máli sínu. Alltaf gaman að vera titlaður sem ofsatrúarmaður (fyrsta sinn) og andskotans vitleysingur (líklegast ekki í fyrsta sinn). Stórmerkilegt með mannskeppnuna að þegar hún er ósammála einhverjum þá grípur hún frekar til að moka aur yfir viðkomandi heldur en að svara með góðum og gildum rökum.

Jói: Gaman að horfa á vitlausa fólkið? Ég ætla sko pottþétt að vera fremstur þarna í flokki. Öskrandi að himininn sé að falla. Með nærbuxurnar á hausnum.

Magnús: Yfirleitt þá rúnka ég mér bara yfir myndum af mömmu þinni, en takk samt fyrir commentið.

#7

Maggi, föstudagur 12 september kl: 22:51

Haha fyndið að fleiri en móðursjúku konurnar á barnalandi hafi verið á móti þessari tilraun. Ertu virkilega að segja mér að þú sért á móti allri framþróun vísinda?

#8

Sturla, mánudagur 15 september kl: 09:22

Haha Maggi. Nei, ég er mjög fylgjandi allri þróun vísindanna og get ekki séð hvernig þú gast lesið að ég væri það ekki úr þessum pistli. Reyndar hafði ég meiri áhyggjur af því hvort ég myndi vakna á réttum tíma fyrir vinnu þennan dag sem tilraunin fór fyrst fram, frekar en yfir því hvort jörðin væri búinn að tortímast fyrir hádegi. Samt alltaf gaman að geta skrifað dómsdagsblogg.

EN ég verð nú samt að setja stórt spurningarmerki við þá aðila sem tóku mig alvarlega og riðu hér fram á ritvöllinn*. Í staðinn fyrir að benda fáfróðum múgnum á t.d. afar góða grein sem var skrifuð á vísindavef HÍ (http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=48934) þá er öllum rökfærslum sleppt og maður sakaður um að vera:

1. Ofsatrúarmaður (þrátt fyrir að ekkert sé minnst á guð í greininni)
2. Trjáfaðmari (þrátt fyrir að hvergi komi fram að mér sé einhvað umhugsað um náttúruna)
3. Andskotans vitleysingur (gæti hafa hitt naglan á höfuðið, en persónulega dæmi ég aldrei neitt eftir eina grein)
4. Á móti allri framþróun vísinda (come on?!).

Svona svör segja nú ýmislegt um viðkomandi.

*Þakka samt Birgi og Tryggva fyrir góð svör.

Skrifaðu athugasemd: