þriðjudagurinn 8. júlí 2008

Ólympíuleikarnir í Kína að fara að byrja

mánudagurinn 7. júlí 2008

Man Vs. Computer

Ég átti erjum við tölvuna í vinnunni í dag og þurfti að hemja mig til að það endaði ekki svona...

fimmtudagurinn 26. júní 2008

Fótboltalandsliðið

Ég er mikill aðdáandi kvennalandsliðsins í knattspyrnu og hef verið það síðan ég sá Grétu Mjöll Samúelsdóttir skora beint úr hornspyrnu hér um árið. Það var á þeirru stundu sem það rann upp fyrir mér að kvennaliðið var bara mikið skemmtilegra en karlaliðið. Ég held að það sé kominn tími á að skúffa algjörlega út karlalandsliðinu í fótbolta og einblína á kvennaliðið, sem rokkar feitt þessa daganna. Fyrir utan það að karlaliðið hefur ekki getað blautan skít síðan Gaui Þórðar þjálfaði liðið (og þá bara út af því að þeir spiluðu með níu manna vörn og einn frammi), þá er kvennalandsliðið bara mikið skemmtilegra. Tveir hlutir gera kvennaliðið að meira spennandi kosti en karlaliðið.

1. Þær skora mörk.
2. Þær vinna leiki.

Þar fyrir utan eru þær efstar í sínum riðli í undankeppninni fyrir evrópumótið í knattspyrnu. Íslenskt fótboltalandslið á leiðinni á stórmót? Ég ætla allaveganna að horfa á leikinn í kvöld.
Fyrri síða12378910111213
14
Næsta síða
Síða 14 af 14
Eldri færslur