sunnudagurinn 11. janúar 2009
Það er til þín...
Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.
Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
- Kristján frá Djúpalæk
Hér er ekki skortur á nauðsynjavörum, það er enginn að svelta hérna, það eru engir pyntaðir eða drepnir af ríkisstjórninni hérna. Sá næsti sem heldur því fram að hér þurfi blóðuga byltingu ætti að fara í röðina á eftir þeim Klemens bræðrum hjá sálfræðingnum.